Ragland Randa er fimm barna móðir. Barnsfjöldinn einn og sér væri of mikið fyrir marga, en fyrir Röndu er það aðeins toppurinn á ísjakanum.
Þriggja ára sonur hennar, Jaxen, sem er einhverfur og talar ekki, hefur greinst með sjaldgæft krabbamein.
Þannig það er nóg að gera hjá Röndu, að fara með Jaxen til læknis og sjá um hin börnin. Skiljanlega hefur hún ekki tíma til að halda heimilinu tandurhreinu eða hvað þá slá grasið fyrir utan húsið.
En nágranna hennar virðist skorta samkennd.
Fyrr í vikunni fann Randa mjög harðorða bréf í póstkassann sinn. Í því stóð að hún ætti að „gera betur.“
Bréfið var frá nágranna hennar sem sendi henni bréfið nafnlaus. Randa deildi mynd af bréfinu á Facebook.
„Nágranni. Vinsamlegast hugsaðu um húsið þitt að utan og gerðu eitthvað í því. Þetta stingur í augun og hefur áhrif á fasteignaverðið í götunni. Hver vill kaupa hús nálægt þér og horfa á þetta daglega? Þú þarft ekki að gera mikið, eina sem þú þarft að gera er að vera ekki skítsama. Gerðu betur!!!“
Randa deildi mynd af bréfinu í hóp á Facebook og skrifaði með myndinni: „Líf okkar samanstendur af læknisheimsóknum og sjúkrahússdvölum fyrir geislameðferð, ígræðslur og aðgerðir. Sonur minn hefur verið bókstaflega að berjast fyrir lífi sínu. Hann hefur verið lagður inn á sjúkrahús oftar en 20 sinnum og hefur farið í sjö aðgerðir. Hann er í alvöru hugrakkasta manneskja sem ég þekki,“ skrifar Randa.
„Segið halló við fólk. Verið vingjarnleg. Það er ótrúlegt hvernig svona hlutir geta breytt manneskju. Kannski sér höfundur bréfsins þetta, kannski ekki. En hvort sem það verður þá held ég að þetta muni hafa áhrif á einhvern.“
Færsla Röndu hefur vakið mikla athygli og hafa þúsundir manns líkað við hana.