Leikkonan Shay Mitchell á von á sínu fyrsta barni. Hún ákvað að opinbera kynið á rosalegan máta og deildi myndbandi af því á YouTube.
Þetta er örugglega villtasta og trylltasta kynjaopinberun sem við höfum séð! Parið sat úti í garði og skyndilega steig út blár Power Ranger. Þau hrópuðu: „Vissi það!!“ Því þau héldu að þau ættu von á strák.
En síðan steig út bleikur Power Ranger. Þá byrjaði bardaginn þar til einn stóð uppi sem sigurvegari!
Þú verður að sjá myndbandið hér að neðan. Þetta er rosalegt!