Stærri er ekki alltaf betri, og í raun getur stærra verið verra. Í nýlegri rannsókn frá Clue kemur í ljós að frumkvæði og falleg framkoma sé það sem skipti höfuðmáli í fari karlmanna þegar kemur að kynlífi. Einnig kom í ljós að konur kjósi frekar menn með meðalstóra getnaðarlimi en gríðarlega stóra.
Þetta gæti komið mörgum á óvart einkum og sér í lagi þeim sem byggja þekkingu sína á kenningum úr klámheiminum.
Margar konur minntust á að menn með stór typpi gætu valdið óþægindum í kynlífi meðan menn í meðalstærð reyndu meira á sig með skemmtilegri tækni og aukaleikjum enda væru þeir með þeim hætti að bæta upp fyrir þá breidd eða lengd sem upp á skorti.