Lífið leikur við George litla prins en hann fagnar sex ára afmæli sínu í dag. Í tilefni dagsins birtu foreldrarnir, Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton mynd sem óhætt er að segja að sprengi krúttskalann því þar sést George brosa breiðu tannlausu brosi. Myndin er tekin að heimili hertogahjónanna við hallargarðinn í Kensington og skrifa foreldrarnir stutta kveðju fyrir neðan þar sem þau þakka fyrir fallegar afmælisóskir sem drengnum hafa borist.