Það mátti ekki tæpara standa þegar hundur í slæmu ásigkomulagi fannst nær dauða en lífi í Vestur-Oahu á Hawaii-eyjum. Hundurinn hafði verið skorinn á mörgum stöðum um skrokkinn og hann einnig grafinn lifandi í fjörunni og skilinn þar eftir til að deyja.
Dýraverndunarsamtökin PAWS of Hawaii tilkynntu um fundinn á Facebook-síðu sinni en einn af meðlimum þeirra kom tíkinni til bjargar.
Tíkin var illa leikin, mjög bólgin og svo þakin sárum að fjarlægja þurfti nær allan feldinn af henni við aðhlynningu. Það var dýralæknir við Aloha Affordable Veterinary Services sem tók á móti tíkinni þar sem hún fékk vökva í æð og viðeigandi lyf en fljótlega kom í ljós að hún þjáðist af miklum innvortis blæðingum og ákaflega kvalin af þeim sökum.
https://www.facebook.com/PAWSofHawaii/videos/391010174881383/?t=4
Tíkinni hefur nú verið komið fyrir á fósturheimili og var fljótlega við komuna þangað gefið nafnið Leialoha en merking nafnsins er „hið ástkæra afkvæmi“.
Fóstran, Amanda, hefur áður skotið skjólshúsi yfir yfirgefna hunda og hún ber Leialoha vel söguna og segir hana braggast vel. „Hún er öll að koma til, en í fyrstu hélt hún sig mikið til hlés. Á örfáum dögum hefur henni þó vaxið fiskur um hrygg og er nú farin að að trítla um allt húsið þótt henni líði óneitanlega langbest undir eldhúsborðinu þar sem hún finnur fyrir öryggi innan um okkur heimilisfólkið.“
Tíkin mun halda kyrru fyrir á heimili Amöndu næsta hálfa árið en óvíst er hvert framhaldið verður. „Hún á mikið verkefni fyrir höndum, en það versta er afstaðið,“ skrifar Amanda á Facebook-síðu PAWS samtakanna.