fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Aðdáendur tóku eftir óvenjulegri hegðun Keanu Reeves þegar hann stillir sér upp með konum – Hvers vegna gerir hann þetta?

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 11. júní 2019 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kanadíski leikarinn Keanu Reeves er duglegur að stilla sér upp með aðdáendum fyrir myndatöku. Nú hefur það vakið eftirtekt að Reeves leggur oftast hendur sínar ekki á bak þeirra sem hann stillir sér upp með. Fyrir vikið hefur fengið viðurnefndir „Konungur kurteisinnar“.

Þessi vani Reeves hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og sitt sýnist hverjum um hvað fyrir honum vakir.

„LOL Keanu tekur sko enga sénsa,“ tísti KemziLinzi og birti með fjórar myndir sem sýna Keanu á myndum með konum þar sem hann gætir þess að koma ekki við þær.

Tístið hefur vakið athygli um 350 þúsund Twitter-notenda sem hafa líkað við færsluna. Við færsluna skrifar annar tístari:

„Svona á að gera þetta nema þú vitir fyrir víst að konan kæri sig um að vera snert. Keanu ætti að vera fyrirmynd okkar allra.“

Aðrir voru þó heldur myrkari í máli og töldu að Keanu væri með þessu hátterni aðeins að hafa vaðið fyrir neðan sig svo hann verði ekki sakður um áreitni.  Notandinn Nate_A_C segir:

„Hann er að reyna að koma í veg fyrir kæru fyrir kynferðislega áreitni þar sem jafnvel faðmlög teljast í dag til áreitni.“

Aðrir hafa bent á að það sem Keanu er að gera á þessum myndum sé þekkt fyrirbæri sem kallast „kurteisis -hendur“ eða „svif hendur“ sem þykir mikið virðingartákn í Suður Kóreu. Reeves skilgreinir sjálfan sig sem asískan-ameríkana þar sem hann á ættir að rekja til Kína.

Frétt FemPositive

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.