Fanney Eiríksdóttir er á leiðinni í aðgerð. Hún og Ragnar Snær, maður hennar, biðja um alla þá hjálp, hlýju strauma og bænir sem í boði eru, og binda miklar vonir við að aðgerðin muni heppnast vel.
„Nú vantar okkur alla þá hjálp, hlýju strauma og þær bænir sem í boði eru.Allt hjálpar og þið spilið stóran þátt í þessu ferli með okkur. Sendið Fanneyju ást og baráttukveðjur og við skoðum þetta allt saman hérna og peppum okkur upp. Við trúum að aðgerðin gangi vel upp og muni hafa stór áhrif í að snúa við því slæma gengi sem hefur fylgt okkur síðustu vikur og mánuði. Það MUN verða svoleiðis!! Ástarkveðjur, trú og kærleikur af spítalanum frá okkur, til ykkar allra. Heyrumst með nýjar fréttir í kvöld eða á morgun.“
Fanney greindist með krabbamein 32 ára gömul og komin 20 vikur á leið með annað barn sitt. Greiningin var henni og Ragnari manni hennar eðlilega mikið áfall. Hún reyndist vera með æxli á stærð við handbolta og telja læknar að það hafi byrjað að myndast fyrir 8-12 árum síðan.
Þá tók við erfið ákvörðun hjá parinu. Ættu þau að fara í fóstureyðingu og hefja krabbameinsmeðferð strax, eða bíða þar til drengurinn þeirra væri fæddur? Þau völdu síðari kostinn og eftir að heilbrigður drengur var kominn í heiminn hóf Fanney geislameðferð.
Það voru ánægjulegar fréttir þegar læknar tilkynntu þeim að æxlið hefði minnkað um 80-90 prósent. En gleðin stóð ekki lengi þegar á daginn kom að krabbameinið hefði dreift sér. Krabbameinið er á fjórða stigi sem er flokkað sem síðasta stigið Fanney deildi sögu sinni með landsmönnum í Íslandi í dag nýverið og hefur fengið stuðning úr öllum áttum. Meðal annars bauð áhrifavaldurinn Ragnar Bergmann upp Liverpool skjöld og gaf allan ágóða til Fanneyjar.
Samkvæmt Facebook-síðu Ragnars er frétta að vænta á næstunni þegar Fanney er kominn úr aðgerð og binda þau vonir við að fréttirnar verði góðar.