Sjónvarpsmaðurinn umdeildi Piers Morgan engdist um af verkjum í þættinum Good Morning Britain þegar hann fékk að upplifa hve sársaukafullt það er að fæða barn.
Piers var tengdur við sérstakt tæki sem líkir eftir hríðaverkjum, en eins og sést í meðfylgjandi myndbandi heldur Piers ekkert sérstaklega lengi út í þessum aðstæðum. Í raun efast hann stórlega um að svo slæmir verkir fylgi því að fæða barn.