fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Svona geturðu aukið gáfur þínar

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 1. maí 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir telja að gáfur séu meðfæddar og að lítið sé hægt að gera til að auka þær. Það sé í raun ákvarðað strax í móðurkviði hvort einstaklingur komi til með verða gáfaður eða ekki þegar hann vex úr grasi. En þetta er alls ekki raunin. Gáfur má auka með ýmsum hætti, meira að segja á gamals aldri. Mörg áhugamál, sem við njótum að stunda, geta aukið gáfur okkar til muna og hér eru dæmi um nokkur þeirra. En vísindalegar rannsóknir þykja hafa sýnt fram á gagnsemi þeirra fyrir heilann.

Spila á hljóðfæri

Það þykir sannað að tónlist hefur örvandi áhrif á heilann. Tónlistin vekur upp flóknar tilfinningar og ákveðið sálrænt ástand. Fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á að bæði það að hlusta á tónlist og spila á hljóðfæri hefur góð áhrif á minnið. Að læra og spila á hljóðfæri kennir fólki jafnframt þolinmæði og skerpir einbeitinguna.

Fjölbreytt lesefni

Það vita það líklega flestir að lestur er öllum hollur. Hann getur aukið gáfur á ýmsum sviðum og það á sérstaklega við ef fólk les fjölbreytt efni. Allt frá spennusögum, til ævisagna og fræðirita.
Lestur þykir hafa róandi áhrif á hugann og dregur úr stressi. Við lesturinn upplifir fólk ýmsar tilfinningar og lærir eitthvað nýtt. Hann eykur þekkingu sem jafnframt undirbýr fólk til að takast á við mismunandi aðstæður.

Regluleg íhugun

Helsti ávinningurinn af því að íhuga er að það hjálpar fólki að einbeita sér að sjálfu sér og finna sjálft sig.
Íhugun dregur úr stressi losar fólk við óþarfa áhyggjur. Það að hreinsa hugann reglulega gerir fólki auðveldara um vik að læra eitthvað nýtt og skipuleggja sig á áhrifaríkari hátt.
Með reglulegri íhugun getur fólk öðlast fulla stjórn á sjálfu sér, en það er lykilatriði þegar kemur að því að auka gáfurnar með einhverjum hætti.

Þjálfa hugann

Það er jafn mikilvægt að þjálfa hugann og líkamann til að halda honum í góðu formi.
Allir ættu að ögra huganum mjög reglulega til að viðhalda þekkingu og færni hans til að leysa þrautir.
Þetta er hægt að gera með ýmsum hætti, eins og með því að leysa sudoku, spila borðspil, leysa gátur og púsla. Þessar athafnir hjálpa huganum að mynda nýjar tengingar og bregðast við aðstæðum á skapandi hátt. Þær bæta jafnframt getuna til að sjá hlutina frá mismunandi sjónarhornum.

Fara á æfingu

Heilbrigður líkami er fyrsta skrefið að heilbrigðum huga, enda er hann eins og hver annar vöðvi í líkamanum. Regluleg hreyfing hjálpar líkamanum og heilanum að starfa rétt. Hreyfingin dregur úr spennu og fólk sefur betur.
Læknar eru sammála um að aukið blóðflæði til heilans auki virkni hans. Þá hafa rannsóknir á bæði dýrum og mönnum sýnt fram á að hjartastyrkjandi æfingar geta fjölgað heilafrumum og aukið heildarvirkni heilans.

Læra nýtt tungumál

Það er svo sannarlega ekki alltaf auðvelt að læra nýtt tungumál, en kostirnir við það eru mjög margir. Það er til dæmis talið að aukin tungumálakunnátta geri fólk gáfaðra.
Að læra nýtt tungumál felur í sér ýmis verkefni, eins og að greina málfræði og uppbyggingu nýrra orða og setninga, sem hefur jákvæð áhrif á hugann.
Þá þykir það hafa verið vísindalega sannað að fólk með góða tungumálakunnáttu er betra í að skipuleggja sig en aðrir og á auðveldra með að taka ákvarðanir og að leysa vandamál.

Skrifa niður tilfinningar sínar

Það er alltaf gott að vera duglegur að skrifa, það þjálfar ekki bara bara færni fólks í tungumálinu heldur hjálpar til við að skerpa einbeitinguna, auka ímyndunaraflið og skapandi hugsun.
Það er hægt að skrifa á marga mismunandi vegu. Ein leiðin er að halda dagbók eða persónulegt blogg. En hvaða leið sem fólk velur þá er það alltaf að koma frá sér texta og læra að tjá tilfinningar sínar sem er góð leið til að auka gáfurnar.

Ferðast til nýrra staða

Ferðalög geta hreinsað hugann af stressi og þegar fólk nær þeim stað er auðveldara að einbeita sér að ákveðnum verkefnum, uppgötva nýja hluti og dýpka skilning á ýmsum málum.
Allir nýir staðir sem heimsóttir eru bjóða upp á nýja upplifun, hvort sem það felur í sér að hitta nýtt fólk, borða framandi mat, kynnast nýrri menningu, samfélögum og lífsstíl. Þetta allt gefur þér nýjar hugmyndir sem þú hefðir aldrei annars fengið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Indriði læknir þreyttur á vottorðabákninu – „Ég endurnýja sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið í 10 ár í röð fyrir sama bakverkjavandanum“

Indriði læknir þreyttur á vottorðabákninu – „Ég endurnýja sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið í 10 ár í röð fyrir sama bakverkjavandanum“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Pressan mikil á þremur liðum í þriðju umferð

Pressan mikil á þremur liðum í þriðju umferð

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.