Raunveruleikastjarnan Chloe Khan vakti mikla athygli í þáttunum Celebrity Big Brother og prýðir nú forsíðu tímaritsins Playboy.
Í blaðinu situr hún fyrir á undirfötum en Chloe hefur talað opinskátt um þær fegrunaraðgerðir sem hún hefur farið í.
Talið er að Chloe hafi eytt um hundrað þúsund pundum í fegrunaraðgerðir, eða tæpum sextán milljónum króna.
Hún hefur farið í nefaðgerð, látið bæta í varir sínar, farið í brjóstastækkun og látið stækka afturenda sinn.
Chloe er með 1,6 milljónir fylgjenda á Instagram og er ávallt á faraldsfæti, á milli þess sem hún leggst undir hnífinn og lætur lappa upp á sig.