fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Sigtryggur og Svandís eiga von á strák

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 7. apríl 2019 17:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sig­trygg­ur Magna­son skáld og Svandís Dóra Ein­ars­dótt­ir leik­kona eiga von á barni í lok sumars. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Sigtryggs þar sem hann deilir mynd af eiginkonu sinni við Þjórsárdal, en þau skötuhjú eiga von á dreng.

„Það er óhætt að segja að við hlökkum mjög mikið til að kynnast þessum fjörkálfi!“ segir Sigtryggur.

Þau Sigtryggur og Svandís Dóra hafa verið saman um nokkurt skeið og giftu sig árið 2015. Þetta verður fyrsta barn þeirra beggja.

Sig­trygg­ur er vel þekkt­ur í aug­lýs­inga­brans­an­um en hann hef­ur starfað í hon­um síðan 2005. Hann á að baki feril í blaða­mennsku sem rit­stjóri Dæg­ur­mála­út­varps Rásar 2, umsjón­ar­maður Helg­ar­blaðs DV, rit­stjóri Sirkuss Reykja­vík og fastur pistla­höf­undur hjá Morg­un­blað­inu. Þá var hann aðstoð­ar­maður mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra frá 2009-2010. Sig­tryggur hefur einnig feng­ist við rit­störf og hafa leik­verk hans verið sett upp hér á landi og víðar.

Svandís Dóra hefur leikið í sjónvarpsþáttunum Rétti, Pressu og Ástríði, kvikmyndunum Kurteisu fólki, Borgríki og fór með hlutverk Díönu Klein í kvikmyndinni um Harrý og Heimi. Hún fór með eitt af aðalhlutverkunum í kvikmyndinni Fyrir framan annað fólk í leikstjórn Óskars Jónassonar og sjónvarpsþáttaröðinni Borgarstjórinn, hugarfóstri Jóns Gnarr.

Bleikt óskar parinu innilega til hamingju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
EyjanFastir pennar
Fyrir 10 klukkutímum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.