Dr. Sandra Lee, eða Dr. Pimple Popper eins og hún er betur þekkt, hefur slegið í gegn á YouTube síðastliðin ár. Dr Sandra Lee er húðsjúkdómalæknir og hefur atvinnu að því að stinga á ýmiss kýli og kreista bólur.
Í nýju myndbandi á Instagram-síðu sinni kreistir Sandra ansi myndarlega bólu og stundin þegar hún springur er klárlega ekki fyrir viðkvæma.
Við vörum við myndbandinu hér fyrir neðan: