fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Snooki segir Mike skemmta sér konunglega í fangelsi: „Hann er að spila bingó!“

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 3. apríl 2019 08:35

Snooki og Mike „The Situation“ Sorrentino

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefur margt gerst hjá Jersey Shore raunveruleikastjörnunum í ár. Mike „The Situation“ Sorrentino afplánar nú átta mánaða fangelsisvist og JWoww er að ganga í gegnum erfiðan skilnað.

„Jenni hefur það frábært. Allir eru að ganga í gegnum sitt eigið rugl núna, þetta er alveg, við ættum að vera með raunveruleika þátt, sem við gerum!“ Segir Snooki í samtali við E! News.

„Þannig, Jenni hefur það frábært. Augljóslega erfiðir tímar, en ég hef aldrei séð hana öruggari og hamingjusamari og þú veist, sumir hlutir ganga ekki upp. Þannig vonandi mun allt ganga upp og þau geta deilt sameiginlegu forræði og sagt þetta gott.“

Snooki ræddi líka um Mike sem afplánar nú fangelsisvist. Snooki sagði að hann hefði sjaldan skemmt sér betur.

„Það er eins og hann sé á elliheimili, hann er að spila bingó, hann er að hjálpa fólki að ná bata í fangelsi,“ sagði hún.

„Við tölum við hann í gegnum tölvupóst og ég tala við hann einu sinni í viku. Hann er mikið í ræktinni þannig hann á örugglega eftir að koma út vel skorinn. Þú veist, hann á ekki eftir að vera með BDS lengur – Big Daddy Sitch. Hann á örugglega eftir að fá sixpakkið sitt aftur. En hann hefur.. hann hefur það gott þarna inni.“

Snooki er ólétt af barni eiginmanns síns, Jionni Lavalle. Þetta er þriðja barn parsins og strákur númer tvö. Fyrir eiga þau Lorenzo Lavalle, sex ára, og Giovanna Lavalle, fjögurra ára.

„Núna er ég gengin sjö mánuði á leið og þessi meðganga er örugglega sú versta. Vegna þess að ég er að elta 4 og 6 ára börn um allt. Ég er ekki alveg að fá tíma til að hvíla mig eða sofa eða gera eitthvað svoleiðis, sem er í lagi en ég er önug. Ég er tilbúin að þetta sé búið. Ég er mjög spennt að eignast mitt þriðja barn samt, en ég veit að þetta verður stressandi því allir segja að þriðja barnið sé barnið sem gerir þig klikkaða. Og ég er þegar klikkuð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Var „í sjokki“ eftir að hann kom til landsins í desember – „Fyrsta skrefið í því að hugsa um Ísland sem möguleika“

Var „í sjokki“ eftir að hann kom til landsins í desember – „Fyrsta skrefið í því að hugsa um Ísland sem möguleika“
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Spáin fyrir Bestu deild kvenna – „Ég myndi segja að það sé eina sjokkið“

Spáin fyrir Bestu deild kvenna – „Ég myndi segja að það sé eina sjokkið“
Eyjan
Fyrir 18 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Stöð 2 lækkar verð

Stöð 2 lækkar verð

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.