fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Tíu atriði sem gera þig hamingjusamari

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 27. apríl 2019 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það þykir sannað að þeir sem eru heiðarlegir, jákvæðir og þakklátir einstaklingar séu hamingjusamari en ella.

Lífið er ekki alltaf sanngjarnt en þannig er það nú bara. Sættu þig við það eins og það er og breyttu því sem þú getur og vittu til að líf þitt verður hamingjuríkara. Hér fyrir neðan eru nokkur atriði sem eru talin vera ávísun á betri líðan.

1. Fyrirgefðu

Neikvæð orka skapar vanlíðan. Þeir sem erfa hlutina við aðra eru líklegri til þess að verða varir við streitu, depurð og kvíða. Ekki láta einhvern hafa vald yfir tilfinningum þínum og stjórna þér. Með því að fyrirgefa ertu fyrst og fremst að skapa þér betri líðan. Reiði og biturleiki skapar vanlíðan.

2. Góð framkoma

Þegar þú framkvæmir óeigingjarna hluti framleiðir heilinn hormón sem heitir Serotonin, sem er talinn draga úr streitu. Þeir sem eru hjálplegir eru því minna stressaðir en aðrir.

3. Þakklæti

Temdu þér að þakka fyrir eitthvað á hverju degi. Það er hægt að þakka fyrir svo margt, til dæmis fyrir það að vakna á nýjum degi. Heimilið, börnin, fjölskylduna, matinn, heilsuna, vinina, vinnuna og svo mætti áfram telja endalaust.

4. Ekki pirrast

Lífið er of stutt til að láta litlu hlutina fara í taugarnar á manni.

5. Láttu þig dreyma

Að dagdreyma um stóra hluti mun bara koma þér nær draumnum. Ekki hætta að láta þig dreyma um hluti sem virðast vera langt frá raunveruleikanum. Þeir sem hugsa stórt eru líklegri til þess að ná árangri í lífinu.

6. Sjáðu það besta

Slúður veldur vondri líðan og samviskubiti eftir á. Sjáðu það besta í öllum og ef þú hefur ekkert gott að segja er betra að þegja.

7. Lífið er núna

Ekki dvelja í fortíðinni hún er búin og ekki hægt að breyta henni. Njóttu þess að lifa í dag en ekki bíða eftir að eitthvað breytist til þess að þú farir að njóta lífsins.

8. Veldu þá sem þú umgengst

Það er mjög mikilvægt að vinir þínir séu jákvæðir og fullir af góðri og jákvæðri orku. Ef þú umgengst neikvætt fólk þá muntu verða neikvæður.

9. Ekki ljúga

Þeir sem segja ósatt eru ekki vinsælir til lengdar. Mundu bara ef þú gerir mistök að þú ert mannlegur og sannleikurinn er sagna bestur og gerir þig frjálsan.

10 Hreyfðu þig

Þeir sem hreyfa sig regluleg og helst í 30 mínútur daglega, eru taldir vera hamingjusamari en þeir sem gera það ekki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood
433
Fyrir 17 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.