Britney Spears dvelur nú á geðheilbrigðisstofnun vegna andlegs álags sem hefur fylgt veikindum föður hennar. Hún hefur tekið sér hlé frá tónleikaröð sinni í Las Vegas.
Fyrir nokkrum dögum deildi hún myndbandi þar sem hún ítrekaði að hún væri í lagi.
Sjá einnig: Britney rýfur þögnina – Fjölskyldan fær líflátshótanir: „Allt er orðið stjórnlaust!!!“
Í gær deildi Britney myndbandi af sér taka á því í ræktinni á geðheilbrigðisstofnuninni. Hún lyftir lóðum og dansar í myndbandinu.
„Hverjum hefði dottið í hug að stress gæti verið frábær leið til að léttast. Vei fyrir mig,“ skrifaði Britney með myndbandinu.