fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Hvar bólurnar eru staðsettar segir ýmislegt um heilsu þína

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 18. apríl 2019 10:00

Bólurnar segja ýmislegt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bólur geta verið okkur til ama og því ekkert fagnaðarerindi þegar þær brjótast út – stundum korteri fyrir myndatöku. En hvar bólurnar birtast getur sagt ýmislegt um heilsu okkar og misjafnt hvernig best er að takast á við þær.

Á milli augabrúna eða á nefinu

Þú ert annað hvort á kynþroskaskeiðinu eða að upplifa mikla streitu. Viðbrögð líkamans við streitunni og aukið adrenalín veldur feitari húð og þar af leiðandi brjótast út bólur, sérstaklega á þessum svæðum.

Við hárrótina

Hugsanlega notar þú of mikið af efnum í hárið eða þú hefur nuddað þeim inn í húðina og stíflað svitaholurnar. Ef þú strýkur hárinu aftur með óhreinum höndum getur þú sömuleiðis stíflað svitaholurnar.

Í kringum munninn

Ástæðan er líklega mataræði. Leifar af súrum mat og fita eru líklegustu sökudólgarnir. Best er að þvo sér í kringum munninn eftir máltíðir eftir að hafa þvegið hendurnar vel og vandlega.

Á kinnunum

Eflaust þarft þú einfaldlega að þvo hendurnar. Þú ættir líka að huga að því að þrífa símann þinn og lyklaborðið.

Á eyrunum

Hér er vökvaskortur algengasti sökudólgurinn en lausnin er einföld – drekktu meira vatn.

Á upphandleggjum

Oft er um að ræða húðsjúkdóm sem gengur í erfðir og brýst út í upphleyptum rauðum bólum sem þekja húðina. Mælt er með því að hreinsa húðina en gæta þess að nota efni sem inniheldur ekki sápu, því sápan getur þurrkað húðina.

Annars staðar

Það er erfitt að segja en ef um raunveruleg húðvandamál er að ræða mælum við með því að leita ráða hjá lækni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Allt vitlaust um borð í flugvél – Lét yfirmann sinn heyra það vegna sæta á fyrsta farrými sem ungir menn voru í

Allt vitlaust um borð í flugvél – Lét yfirmann sinn heyra það vegna sæta á fyrsta farrými sem ungir menn voru í
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ofurparið birtir ótrúlegt myndband – Nakin í sleik í sturtu

Ofurparið birtir ótrúlegt myndband – Nakin í sleik í sturtu
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.