Rebel Wilson opnar sig um erfiðleikana að finna kjól í sinni stærð áður en ferill hennar fór á flug.
Leikkonan segir að áður en tískuiðnaðurinn byrjaði að koma til móts við fólk í öllum stærðum og gerðum, var hún vön að missa af stórum viðburðum því hún gat ekki fundið föt í sinni stærð.
„Þegar ég var á þrítugsaldri fór ég ekki einu sinni í brúðkaup vinkonu minnar því ég vissi ekki hvar ég ætti að kaupa kjól í minni stærð,“ sagði Rebel í viðtali við InStyle.
En nú þökk sér stílistanum hennar, Elizabeth Stewart, hefur það allt breyst.
„Með því að vinna með henni þá hef ég lært alls konar ráð og brögð, og þau í alvöru virka. Þá líður þér betur þegar þú þarft að klæða þig,“ segir Rebel.
„Nú á ég fullan fataskáp af Givenchy! Fjölskyldan mín mun hata mig fyrir að segja þetta, en þau fara í gegnum skápinn minn því við erum í svipaðri stærð og þau vita að ég er með besta tískuvitið. Þau vita hvað ég er að tala um. Þannig mér finnst ég oft segja frá minni vitneskju, sérstaklega stelpum í stærri stærðum.“