Pink er komin með nóg af „mömmu-smánun“ á samfélagsmiðlum. Söngkonan deildi færslu á Instagram í gær þar sem hún lýsti yfir reiði sinni gagnvart „f***ing ógeðslegum“ ummælum við mynd af syni hennar. Á myndinni er sonur hennar, Jameson Moon, 2 ára, nálægt sundlaug og ekki með bleyju.
„Það er eitthvað virkilega mikið að mörgum ykkur þarna úti. Að tala um typpið á barninu mínu? Um umskurð???? Er ykkur alvara? Eins og hver önnur venjuleg móðir á ströndinni þá tók ég ekki eftir því að hann tók af sér bleyjuna.“
Með skilaboðunum deildi Pink myndinni sem um ræðir nema í þetta skipti krotaði hún yfir neðri hluta Jameson.
„Ég eyddi myndinni því þið eruð öll fokking ógeðsleg,“ segir Pink og bætir við að hún hefur nú slökkt á kommentum við myndirnar sínar á Instagram.
„Það er eitthvað virkilega mikið að mörgum ykkar. Hér er mynd af pelíkana sem við augljóslega handsömuðum og misþyrmdum í marga klukkutíma áður en við dingluðum barnatyppi framan í hann.“