Athafnakonan og þyrluflugmaðurinn Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur hafið störf sem einkaþjálfari í líkamsræktarstöðinni World Class.
„Mitt markmið er að hjálpa viðskiptavinum mínum að ná jafnvægi í lífsstíl, heilsurækt og vellíðan,“ skrifar Ásdís Rán á Instagram, en í viðtali við DV seint á síðasta ári sagðist hún hlakka til að klára einkaþjálfaranámið.
https://www.instagram.com/p/BupPHE-gyOS/
„Ég er í skóla og klára einkaþjálfaranám núna í desember. Þá verð ég löggiltur einkaþjálfari og get farið að miðla minni reynslu sem ég hef viðað að mér síðustu tuttugu ár í þessum heimi. Vonandi get ég hjálpað fólki með heilsu og lífsstíl í aukavinnu, mér til gamans. Þá get ég spunnið saman andlega og líkamlega heilsu, eða markþjálfun, út frá bókinni minni Valkyrjunni og íþróttanáminu,“ sagði Ásdís Rán þá, og bætti við að hún hefði reynslu af því að kenna fólki réttu handtökin í ræktinni.
https://www.instagram.com/p/BuqldeFAwNs/
„Ég var oft að kenna í ræktinni í gamla daga, en þá þurfti maður engin réttindi. Annars er þetta bara áhugamál og ástríða og mér finnst gaman að hjálpa fólki og miðla reynslu, þannig að ég ákvað að skella mér í námið út frá því.“