Það kannast líklega margir við að hafa heyrt um fólk sem „yfirborðs“ hreinsar. Það eru þeir kallaðir sem þurrka af hillunum án þess að færa stytturnar til eða þeir sem ryksuga gólfið án þess að færa húsgögn frá. Þess konar hreinsiaðferð er ekki líkleg til ávinnings því hún gerir það að verkum að hluti af ryki og drullu liggur enn á sínum stað og heldur áfram að safna drullu á sig sem síðan dreifir úr sér á aðra staði.
En það eru þó ekki allir sem átta sig á því að jafnvel þrátt fyrir að þeir haldi að þeir séum að djúphreinsa hlutina, þá getur legið eitthvað á bak við sem erfitt er að komast að. Þar má meðal annars nefna staði eins og áklæðið undir sófapullunum, sturtubotninn og niðurföllin.
Kona ein sem ákvað að taka sig til og þrífa vaskinn sinn velti því fyrir sér hvort hún gæti losað tappann sem lokar niðurfallinu á eldhúsvaskinum. Hún rak upp stór augu þegar hún uppgötvaði hvað lá þar undir.
„Ég hef aldrei séð neitt sem lítur jafn ógeðslega út eða sem lyktar jafn illa,“ sagði konan sem deildi reynslu sinni á samfélagsmiðlum til þess að vara annað fólk við.
Fleira fólk tók sig þá til og ákvað að gera slíkt hið sama og kom í ljós að um algengt vandamál var að ræða.
„Ég mun klárlega gera þetta reglulega núna,“ sagði ein kona sem fygldi ráðum hennar. Önnur sagði: „Ég náði að losa mitt lok af með skrúfjárni og OMG hvað þetta var mikill viðbjóður.“