„Þegar ég var lögð inn á bráðamóttökuna þá hélt ég að ég væri að fá bráðaofnæmiskast vegna þess að ég átti erfitt með að anda og bæði tungan í mér og varirnar voru mjög bólgnar,“ segir hin tuttugu og þriggja ára gamla Lydia O‘Connor sem upplifði alvarleg útbrot um allan líkama.
Lydia sem er búsett í Essex, segir útbrotin geta komið hvenær sem er og að þau geti orðið henni lífshættuleg. Læknarnir hafi upphaflega haldið að hún væri með hnetuofnæmi þar sem hún hafði fengið svipuð útbrot þegar hún var sextán ára.
Eftir að hafa verið lögð inn á spítala og skoðuð í fjóra daga var henni greint frá því að hún væri í raun ekki með ofnæmi heldur væri orsökin „idiopathic urticaria,“ eða óþekktur ofsakláði.
Þegar bólgurnar á vörunum og tungunni hafa gengið til baka fær Lydia ofnæmisútbrot sem dreifa sér um allan líkamann. Samkvæmt Metro hurfu útbrot Lydiu í ágúst á síðasta ári en hún hræðist það að fá þau aftur.
„Lyfin tóku bólguna í burtu en daginn eftir kom það allt aftur, svo hélt þetta áfram aftur og aftur. Ég vaknaði með stór útbrot á hverjum degi sem mig klæjaði í. Þau voru meira að segja inni í lófunum á mér og undir iljunum. Mér leið illa og ég var svo þreytt vegna þess að ég gat ekki sofið fyrir kláða. Ég er hrædd um að þetta komið aftur þar sem þetta byrjaði þegar kólna fór í veðri. Ég velti því fyrir mér hvort að þetta tengist snjókomu og köldu veðri.“
Læknar greindu Lydiu frá því að þar sem upptök útbrotanna séu óþekkt þá sé í raun erfitt að sjá fyrir hvort þetta komið aftur. Sama þótt hún myndi breyta lífsstíl sínum mikið þá er ekki vitað hvort þetta gerist aftur.
„Vinir mínir skilja þetta ekki. Þeir halda að það sé til lausn á þessu en ég hef reynt allt án árangurs.“
Lydia segist viss um það að fleira fólk þjáist af samskonar útbrotum og hún hefur þurft að takast á við án þess að gera sér grein fyrir því. Líklegt sé að fólk telji sig hafa ofnæmi þegar það er í raun með ofsakláða.