Jordyn Woods hefur þurft að skrifa undir svo kallaðan „þagnarsamning“ (e. non-disclosure agreement) eins og flestir aðrir vinir Kardashian-Jenner fjölskyldunnar.
Nú er fjölskyldan kvíðin að Jordyn Woods ætli sér að rjúfa þagnarskyldu sína. Á morgun mun Jordyn setjast niður með Jada Pinkett Smith í þættinum Red Table Talk og mun að öllum líkindum tala um framhjáhaldið með Tristan Thompson.
Kardashian systrum lýst ekkert á blikuna. Samkvæmt People og TMZ er raunveruleikafjölskyldan „pirruð“ yfir því að Jordyn er að reyna að „afvegaleiða umræðuna“ án þess að tala við sig fyrst.
„Kardashians eru alveg hundrað prósent búin með Jordyn,“ segir heimildarmaður People. „Þau segja að hún hefði átt að reyna að tala við þau beint, en hún gerði það. Þau voru bara of reið til að hlusta á hana eða veita henni einhverja athygli.“
Heimildarmaður ET segir að raunveruleikastjörnunum „finnst Jordyn ætti frekar að einblína frekar á að laga samband sitt við fjölskylduna persónulega en ekki opinberlega,“ og ef „Jordyn fer ekki rétt að þessu þá er öll von úti að hún verði aftur vinkona fjölskyldunnar eða Kylie.“
Vegna þagnarskyldu Jordyn má hún ekki tala um persónuleg líf fyrrum vina sinna í viðtalinu. Það verður áhugavert að sjá hvað Jordyn mun segja á föstudaginn. Við bíðum spennt!