Brasilíska fyrirsætan Nathalia Soliani birtir hjartnæma ástarjátningu á Instagram-sögu sinni í dag til knattspyrnukappans Rúriks Gíslasonar. Í dag er Valentínusardagurinn og biður Nathalia Rúrik að vera sinn þennan dag, eins og venja er á þessum degi.
Nathalia er með samning hjá fyrirsætuskrifstofunni IMG Models, einni stærstu módelskrifstofu heims. Meðal annarra fyrirsæta á mála hjá skrifstofunni eru Amber Valletta, Ashley Graham, Bella Hadid, Candice Swanepoel, Gisele Bundchen og Karlie Kloss.
DV komst fyrst á snoðir um samband Nathaliu og Rúriks í lok desember í fyrra og hafa þau verið sífellt meira áberandi með ást sína á samfélagsmiðlum.
Í sögu sinni á Instagram í dag segist Nathalia elska Rúrik og er þakklát fyrir að hafa hann í lífi sínu.
„Takk fyrir að vera maður drauma minna,“ skrifar hún við mynd af parinu í teiti fyrir stuttu.