fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024

5 ástæður fyrir því að þú ættir að flytja út á land

Mæður.com
Miðvikudaginn 30. janúar 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við bjuggum á höfuðborgarsvæðinu og höfðum það ekkert sérlega gott peningalega séð, misstum svo íbúðina okkar og allt komið í rugl. Það kom upp hugmynd sem ég hreinlrga man ekki hvaðan kom að flytja hingað á Bíldudal. Pabbi býr hérna fyrir vestan og ættaður héðan svo ég þekkti eitthvað til. Við njósnuðum aðeins og Almar gat fengið vinnu mjög fljótlega og íbúð losnaði fljótlega svo við bara skelltum okkur! Planið var nú bara að vera hérna stutt, vinna og safna okkur pening en það breyttist fljótt og er þetta fjórða árið okkar hérna!

Fólk spyr mig endalaust af hverju Vestfirðirnir?? Hvað er svona spennandi þar?

Þetta er alveg örugglega alls ekki fyrir alla en fyrir okkur Almar sem erum bæði mjög rólegt fólk þá er þetta alveg fullkominn staður og ég mæli með að fólk prófi, skríði úr höfuðborgarholunni og skoði landið aðeins betur.

Náttúran

Náttúran hérna er alveg mögnuð og það er það fyrsta sem ég varð ástfangin af við þennan stað. Bíldudalur er lítill bær sem er umkringdur fjöllum og einstaklega fallegri náttúru. Og halló það eru bara hvítar strendur hérna og sægrænn sjór! Costa del Bíldudalur. Mæli allavega sterklega með að fólk komi í frí vestur og skoði, þið sjáið ekki eftir því.

Samfélagið

Þetta er öruggt samfélag og alveg magnað að sjá krakkana í bænum hlaupandi í leik áhyggjulaus, engin traffík, ekkert vesen.

Hér þekkjast líka allir, ég man eftir í Reykjavík að maður þekkti ekki fólkið sem bjó í sömu blokk. Hérna heilsast allir og stoppa og spjalla og fólki þykir vænt um nágrannann. Þetta er einnig lítið samfélag og ekki mikið af krökkum í leikskóla og grunnskóla eins og í höfuðborginni svo ég veit að börnin mín og önnur fá þá athygli sem þarf frá kennurum.

Stresslaust umhverfi

Eftir að við fluttum hingað er mig farið að kviða bæjarferðum, af hverju? Umferðin frá Borgarnesi til Reykjavíkur/keflavíkur er alveg svakaleg og hún er óþolandi! Og fyrir manneskju eins og mig sem er örlítið félagsfælin er svakalega erfitt að fara á búðarrölt í troðningnum, hvert sem maður fer i höfuðborginni þá er alltaf NÓG að gera og allt of mikið af fólki.

Ódýrt að búa

Við höfum náð að spara okkur pening hérna sem við hefðum ALDREI náð að gera fyrir sunnan. Það er ódýrara að kaupa sér eign hérna og leigan ódýrari.

Það er ekki bónus eða sambærileg verslun hérna svo við nýtum bæjarferðina okkar sem við reynum að taka eina helgi í mánuði í að versla fyrir mánuðinn, það hefur líka kennt okkur mikið hvað þarf og hvað ekki, hvað er best að kaupa og svoleiðis og erum orðin mun skipulagðari þegar það kemur að innkaupum. Það eru líka engar freistingar þar sem við búum allavega, ef okkur virkilega vantar eitthvað þá pöntum við á netinu og ekkert auka drasl með eins og maður á nú til að gera þegar maður fer að versla.

Rólegheitin

Það er tilvalið að búa á landsbyggðinni þegar maður er í námi t.d., engar truflanir og allt svo hljótt. Maður kynnist fjölskyldunni og sjálfum sér meira og elsku náttúrunni. Ekkert stress við að koma öllum í skóla, leikskóla og vinnu enda nokkrar mínútur á milli staða (= lengri svefn).

Svo af hverju ekki? Ég mæli allavega með að allir prófi, sérstaklega fyrir fólk sem er í basli með þessa himinháu leigu fyrir sunnan, það er annað í boði en höfuðborgarsvæðið og þú gætir haft það svo gott annars staðar, getur átt efni á námi, safnað þér fyrir íbúð og fl. Ég er oft spurð af hverju við fluttum hingað, það var leigan í Reykjavík sem ýtti okkur áfram, hitt sem ég taldi upp eru ástæðurnar af hverju við erum enn þá hérna. Ég heyri líka oft fólk tala um af hverju það gæti ekki flutt og þá er oft talað um húsnæðisleysi og atvinnuleysi, en það þarf ekki að vera, verður bara að skoða og vera opin. Hér er t.d. nóg af atvinnu að fá og sum fyrirtæki tryggja starfsfólki sínu húsnæði. Svo ég spyr aftur – af hverju ekki?

Færslan er skrifuð af Gunni Björnsdóttur og birtist upphaflega á Mæður.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Eyjan
Fyrir 2 klukkutímum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Veskið áfram galopið í Vesturbæ ef góður biti er í boði

Veskið áfram galopið í Vesturbæ ef góður biti er í boði
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ásdís Rán á svakalegu djammi með Kanye West þegar önnur stórstjarna mætti – „Kanye vísar honum út og lítur í aðra átt“

Ásdís Rán á svakalegu djammi með Kanye West þegar önnur stórstjarna mætti – „Kanye vísar honum út og lítur í aðra átt“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Albert í sögubækur Genoa eftir gærdaginn – Aðeins tveir gert betur en hann

Albert í sögubækur Genoa eftir gærdaginn – Aðeins tveir gert betur en hann
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Risastór sléttuúlfur reyndist vera gráúlfur – Hurfu af sjónarsviðinu fyrir 100 árum

Risastór sléttuúlfur reyndist vera gráúlfur – Hurfu af sjónarsviðinu fyrir 100 árum
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“