fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Hann sendi skilaboð í rangt númer – Sjáðu stórkostlegt svar lögreglumannsins

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 14. ágúst 2019 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ónefndur maður sendi skilaboð um „að verða skakkur“ í rangt númer. Númerið átti lögreglumaður hjá lögreglunni í Winfield í Missouri og var svar hans alveg stórkostlegt.

Lögreglustöðin deildi skjáskotum af skilaboðunum á Facebook-síðu sinni og hafa netverjar mjög gaman á uppátæki lögreglumannsins.

Samskipti þeirra byrja um klukkan fimm síðdegis á föstudegi. Maðurinn spyr „stelpuna“ hvort henni langar út sama kvöld.

„Hey viltu koma með á leikinn í kvöld? Það mun ekki kosta þig neitt, frí pulsa og gos,“ stóð í skilaboðunum.

Lögreglumaðurinn svaraði þá: „Ég væri mjög til í að fara á leikinn í kvöld! En því miður held ég að þú sért með rangt númer.“

Maðurinn sendi þá: „Nei. Við fórum á leikinn saman.“

„Hvaða leik fórum við á?“ Spyr þá lögreglumaðurinn.

„Með Shari og Diönu. Við urðum skökk saman stelpa. Klæddu þig og ég skal sækja þig, er á trukknum manstu.“

Þá kom stórkostlegt og bráðfyndið svar lögreglumannsins. Mynd af honum með lögreglumerki sitt.

„Nokkuð viss um að við urðum ekki skakkir saman.“

Lögreglumaðurinn fékk ekkert svar og ákvað að stríða honum aðeins meira með því að senda tvö önnur skilaboð.

„Ætlarðu enn þá að sækja mig fyrir leikinn samt?“ Og: „Ég var farinn að hlakka mjög mikil til að fara á leikinn.“

Loksins svaraði maðurinn og sagðist vera með rangt númer.

„Ég reyndi að segja þér það en neiiiiii, ég veit ekki um hvað ég er að tala,“ sagði lögreglumaðurinn.

„Þú mátt hætta,“ sagði þá maðurinn og þar með lauk samskiptum þeirra.

Skjáskotin hafa gengið eins og eldur í sinu um netheima og lofa margir lögreglumanninn fyrir að hafa húmorinn í lagi.

„Þetta er það besta sem ég hef séð í allan dag! Vel gert!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.