Maður, sem kýs að koma fram nafnlaus, segir frá því hvernig hann borgar konum 15 þúsund krónur fyrir að bróka sig á almannafæri. Maðurinn, sem er með „blæti fyrir brókun“, segir My London News sögu sína.
Hann vill láta kalla sig Bobby og segir að þetta sé „fullkomin blanda af niðurlægingu, undirgefni og sársauka.“
Bobby heldur að þetta hafi allt saman byrjað þegar hann var lagður í einelti í skóla og brókaður af öðrum krökkum. Hann er í dag 26 ára.
„Það er erfitt að segja hvenær hugsunin um brókun breyttist úr martröð (þegar þeir sem lögðu mig í einelti gerðu það) yfir í eitthvað sem ég er hrifinn af núna,“ segir Bobby.
„Það er óhætt að segja að ég var brókaður margsinnis í æsku. Skólaganga mín var frekar hrottaleg. Ég man eftir einu atviki sérstaklega. Í lok skólaársins, þegar ég var um fimmtán ára, var ég hífður upp á nærbuxunum á trégrein og skilinn eftir þar. Ég man að hópur af stelpum stóðu bara þarna og hlógu að mér og fóru síðan í tíma. Til að gera hlutina verri þá þurftu kennarar að hjálpa mér niður (ég vildi óska þess að ég var ekki í svona sterkum nærbuxum!). Ég get ekki sagt að blæti mitt hafi byrjað á þessu augnabliki en ég man sérstaklega vel eftir þessum stelpuhóp,“ segir Bobby.
„Í háskóla þekkti ég stóran hóp af mjög sjálfsöruggum stelpum sem brókuðu mig í djóki af og til. Á þessum tíma var þetta orðið eitthvað sem ég var alveg til í.“
Yfir árin hefur þetta orðið að einhverju sem Bobby er mjög hrifinn af og vill helst að konur bróki hann því það er „meira niðurlægjandi.“
Bobby segir að hann borgar konum til að bróka sig um það bil aðra hverja viku og hefur efni á því þar sem hann vinnur fyrir Lundúnarborg.
„Það er misjafnt hvað ég borga mikið, það fer eftir hversu góð brókunin er. Það mesta sem ég hef eytt í brókun er 15 þúsund krónur þegar tvær konur rifu nærbuxurnar af mér í Hyde Park á margmennum sumardegi.“
Bobby vill láta bróka sig á almannafæri og hefur verið brókaður um alla Lundúnarborg, meira að segja á Oxford Street.
„Það eru nokkrir einstaklingar sem bróka mig reglulega á mismunandi stöðum í London. Þeir virðast virkilega njóta þess,“ segir hann og bætir við að það getur verið erfitt að finna fólk til að bróka sig, og notar hann oft samfélagsmiðla til þess.
„Ef ég á að vera hreinskilinn þá held ég að það sé mikið af fólki með brókunarblæti. En ég þekki ekki beint neinn sem er með það, en það eru margir með það á netinu.“