Kona sem ferðaðist með lest í Bretlandi var í mjög saklausum mynstruðum kjól, eða hvað? Eins og má sjá á myndinni hér að neðan er mynstrið frekar óheppilegt
The Sun greinir frá. Myndin hefur vakið mikla kátínu netverja en hún er ekki sú fyrsta til að klæðast frekar óheppilegum klæðnaði.
Í ágúst deildi maður mynd af blómakjól kærustu sinnar á Reddit. „Ég gat ekki hætt að hlægja af henni í „blóma“ kjólnum sínum,“ skrifaði kærastinn. Myndin vakti mikla athygli og skrifuðu yfir þúsund manns við myndina.
Sérð þú af hverju hann gat ekki hætt að hlægja?
Svo var það þessi maður, sem keypti sér skemmtilega röndótta peysu með einhyrningi framan á. Hins vegar horfði hann ekki nógu vel á peysuna áður en hann fór í henni í vinnuna. Frekar óviðeigandi peysa fyrir vinnu…
Sérð þú hvað er athugunarvert við peysuna hans?