Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þingkona fyrir Pírata, hefur verið mikið í fréttum í vikunni eftir að tilnefningu hennar í trúnaðarráð Pírata var hafnað. Fréttir hermdu að hún hefði yfirgefið félagsfund Pírata grátandi, en hún var ein af þeim sem kom að stofnun flokksins á sínum tíma. Því fannst DV tilvalið að draga þrjú tarotspil fyrir Birgittu til að sjá hvað framtíðin bæri í skauti sér fyrir hana.
Birgitta er hrútur, fædd þann 17. apríl árið 1967, og er því bjartsýn, ákveðin, örugg og ástríðufull að eðlisfari. Að sama skapi getur hún verið hvatvís og óþolinmóð þegar sá gállinn er á henni. Fyrsta spilið sem kemur upp í hennar spá er Bikardrottningin sem táknar viðkvæma, skapandi og góða konu sem hleypir ekki hverjum sem er inn fyrir skelina. Hún getur virkað skrýtin á þá sem ekki þekkja hana, en spilið táknar enn fremur að Birgitta búi yfir miklum styrk sem hún nýtir sér í framtíðaráformum sínum.
Næsta spil er 3 sverð sem táknar að ósættið sem Birgitta upplifir innan Pírata heyrir fljótt sögunni til. Þessir erfiðleikar og valdatafl reynist Birgittu strembið, en með metnaði og bjartsýni kemst hún yfir það og reynir fyrir sér á nýjum vettvangi í stjórnunarstöðu. Sú staða verður þó ekki í pólitík, enda Birgitta komin með nóg af henni, einkum vegna þess hve hreinskilin hún er – sem er eiginleiki sem á ekki alltaf samleið með stjórnmálum.
Síðasta spilið sem kemur upp fyrir Birgittu er náfrænka spils númer tvö, nefnilega 4 sverð. Það merkir að áður en Birgitta tekur að sér krefjandi stjórnunarstöðu hugar hún að eigin líðan, slakar á og einbeitir sér að því að yrkja sál og líkama. Þannig kemst hún í snertingu við orkusvið hinnar djúpu þagnar og tæru vitundar. Þá verður allt skýrara og ekki kæmi á óvart ef nýr vettvangur Birgittu væri á andlega sviðinu.