Í nýlegri færslu á Instagram sýnir Jenna Jameson, fyrrverandi klámstjarna og núverandi ketó-drottning, hvað sjónarhorn geta skipt miklu máli.
Jenna deilir tveimur myndum og skrifar með: „Sjónarhorn! Ég get litið út fyrir að vera 180 cm eða 150 cm. Ég er 170 cm.“
Ýttu á örina til hægri til að sjá hina myndina.
Einn fylgjandi Jennu skrifar: „Ég elska þetta! Ég elska þig Jenna! Takk fyrir að deila, ég læri svo mikið af þér. Ég breytti því hvernig ég stend á myndum vegna Instagram-síðunnar þinnar.“