Abigail Ratchford þénar rúmlega 114 milljónir króna á ári sem Instagram fyrirsæta. Hún fær allt að um eina milljón krónur fyrir hverja færslu.
Abigail er 27 ára og með rúmlega 9 milljón fylgjendur á Instagram.
Í viðtali við Daily Star segir hún hafi „slysast í“ fyrirsætubransann eftir að nokkrar myndir af henni á samfélagsmiðlum urðu „viral.“
Abigail þénar tæplega eina milljón fyrir hverja Instagram færslu. Hún er með samninga við fyrirtæki sem selja snyrtivörur, húðvörur, smáforrit og nærföt.
„Vegna fylgjendafjölda míns get ég tekið ákveðna upphæð fyrir samstarf. Ég er með stóra samninga við Ignite og Fashion Nova,“ segir Abigail.
Hún þénar einnig mikið af Escapex, smáforrit þar sem aðdáendur hennar geta nálgast einkaefni.
Fylgjendahópur Abigail stækkaði gríðarlega eftir að hún flutti til Los Angeles árið 2014 til að ná lengra í bransanum.
Abigail er ekki aðeins fyrirsæta á samfélagsmiðlum, heldur hefur hún einnig unnið með tímaritum eins og Esquire, Maxim og Playboy.
En tekjur Abigail stoppa ekki þar, hún gefur einnig út dagatal og græðir tugi milljóna á því.
Hún segir að leyndarmálið á bak við árangur hennar sé að setja sér markmið og „tengjast rétta fólkinu.“
„Ég er með tússtöflur um allt hús. Ég skrifa markmið mín fyrir hvern mánuð, markmið fyrir vinnuna, persónuleg markmið og hluti sem ég vill vinna í svo ég geti þroskast og verið besta útgáfan af sjálfri mér,“ segir Abigail.
„Líka, að tengjast rétta fólkinu. Vertu vingjarnleg við alla sem þú vinnur með, byggðu traust sambönd og ekki hlusta á þau sem hata. Þetta er bara hvítt suð, ekki hlusta á það og einbeittu þér að markmiðum þínum og draumum.“
Það getur kostað sitt að vera Instagram fyrirsæta. Abigail sagði við Cosmopolitan að hún eyðir rúmlega 300 þúsund krónum á mánuði í snyrtivörur og þjónustu.
Hún hefur meðal annars farið í fitufrystingu á höndunum og aftan á lærunum hennar, farið í varafyllingu og fengið bótox. Hún fer vikulega í brúnkusprautun og er með hárlengingar.
„Þetta er ekki tilvalið en aðalhluti starfsins er að líta út á ákveðinn hátt,“ segir Abigail.