Uppistandarinn breski, Jimmy Carr, mætir nú harðri gagnrýni eftir rasískan brandara um kóreska strákabandið BTS.
Jimmy var gestur í ástralska sjónvarpsþættinum 20 to One þar sem hann lét þennan óviðeigandi brandara flakka:
„Þegar ég heyrði að eitthvað kóreskt hefði sprungið í Ameríku, varð ég áhyggjufullur. Svo ég reikna með að þetta hefði getað verið verra – en ekki mikið verra“
Á ensku er orðið yfir að sprengja, explode, notað bæði til að lýsa sprengingum en getur einnig verið notað í samhenginu að sprengja vinsældaskalann, en brandari Jimmys gekk út á þá tvíræðni. Samfélagsmiðlar sprungu í kjölfarið þar sem Jimmy var útnefndur rasisti.
„Jimmy Carr að vera rasískur er ekki fyndið. Athugasemdin þín um BTS var vanvirðandi og móðgandi. Ef þú getur ekki verið fyndinn án þess að vera hrottalegur þá ættirðu að finna þér nýja vinnu.“
@jimmycarr being racist is not funny. Your comments about bts was disrespectful and offensive. If you can’t be funny without being horrible then maybe try a different career.
— charl (@lytear93) June 19, 2019
Aðdáendur BTS kalla sig Herinn hafa skorað á þáttastjórnendur að biðjast afsökunar á atvikinu.
„Þetta var fokking ógeðslegt og sjúklega rasískt. 20 to One biðjist afsökunar, þetta er ekki bara dónaskapur gagnvart listamönnunum heldur eruð þið líka búin að móðga Herinn. Ekki fjalla um BTS í þættinum ykkar ef þið ætluð að sýna þeim vanvirðingu.“
this is fucking disgusting and racists as fuck @20toOne fucking apologise not only is it rude to the artists but y’all also offended armys this shit ain’t it don’t ever include bts in your shitty show if y’all can’t even give them respectpic.twitter.com/rjsBbiD1eE
— inc kookoo ?️? (@incorrectjeon) June 19, 2019
Sjónvarpsstöðin baðst formlega afsökunar í gær.
„Sem léttmetis skemmtiþáttur, þá teljum við að þátturinn af 20 to One sem var sýndur í gær, hafi ekki brotið neinar reglur, ætlunin var að leggja á gamansaman hátt áherslu á gífurlegar vinsældir hljómsveitarinnar. Við biðjum alla sem þátturinn fór fyrir brjóstið hjá afsökunar.“
Ekki er langt síðan að annar brandari Carrs olli svipuðu umtali. Sá brandari beindist að einstaklingum með dvergvöxt þar sem hann kallaði þá „þungunarrof sem hafði það af.“
Hér fyrir neðan má sjá myndband með strákabandinu BTS.