Aukning er á neyslu kannabis hjá verðandi mæðrum í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í rannsókn frá JAMA.
Hlutfallið af óléttum konum sem segjast nota kannabis hefur hækkað úr 3,4% árið 2002 upp í 7% árið 2017. Mesta aukningin er yfir fyrstu þrjá mánuðina en hlutfallið þar hækkaði úr 5,7% í 12,1%.
Einungis 0,5% af konunum sem notuðu kannabis gerðu það að læknisráði.
„Þrátt fyrir það að mörg fylki hafi samþykkt kannabis sem hjálp við ógleði og uppköstum, þá sýna niðurstöðurnar okkur að læknar eru ekki að mæla með því á meðan á meðgöngu stendur.“
Áhrifin sem kannabis hefur á fóstur hafa ekki enn verið staðfest en grunur liggur á að það hafi áhrif á þroska og þyngd fóstursins.