Arnhildur Anna Árnadóttir hefur gengið til liðs við bloggarahóp Trendnets. Segir hún það mikinn heiður og er mjög spennt fyrir tækifærinu.
Það er heiður fyrir mig að fá boð um að vera hluti af þessu glæsilega teymi og ég gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímum.
Arnhildur er 26 ára gamall Seltirningur, lyftingakona, félags- og förðunarfræðingur. Hún kemur úr stórri fjölskyldu, á sjö systkini og er sjálf stolt kisumamma.
Pistlar hennar munu fjalla um heilsu og tengdum umfjöllunarefnum. Áhugamál hennar eru íþróttir, líkamleg heilsa, mannleg hegðun og andlegur styrkur.
Ég æfi kraftlyftingar og hef keppt í íþróttinni síðastliðin 7 ár. Lyftingar hafa klárlega mótað mig sem manneskju og ég er ekkert smá þakklát að fá tækifæri til að miðla minni reynslu, deila með ykkur alls kyns pælingum og staðreyndum um mikilvægi líkamlegs styrks og hvernig við getum verið besta útgáfan af okkur sjálfum.
Þeir sem geta ekki beðið eftir pistlum hennar geta fylgst með henni á Instagram.
https://www.instagram.com/p/BycoU-DhNbN/