fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Notaði vinsælan Snapchat-filter og gómaði barnaperra

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 13. júní 2019 10:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samskiptaforritið Snapchat er greinilega til margra hluta nytsamlegt en því fékk tvítugur Bandaríkjamaður, Ethan að nafni, að kynnast á dögunum.

Forritið býður upp á allskonar skemmtilegar viðbætur, eða svokallaða filtera, sem hafa eflaust kitlað hláturtaugar margra. Þannig er hægt að láta forritið breyta útliti fólks þannig að til dæmis fullorðnir einstaklingar líta út eins og börn og karlar líta út eins og konur – og mikið meira til.

Það var einmitt seinni „filterinn“ sem Ethan notaði þegar hann ákvað að fara á stúfana og athuga hvort þarna úti leyndist einstaklingur – eða einstaklingar – sem freistuðu þess að komast í kynni við börn í kynferðislegum tilgangi.

Ethan tók mynd af sér, stofnaði aðgang á Tinder undir nafninu Esther og setti myndina svo á stefnumótaforritið.

Ekki leið á löngu þar til fullorðinn maður setti sig í samband við Esther. Eftir stutt samtal sagði Esther manninum að hún væri sextán ára og spurði hvort hann gerði athugasemdir við það. Í fyrstu sagði hann að aldurinn gæti „verið vandamál“ en eftir því sem lengra leið á samtalið virtist það ekki vera vandamál lengur.

Til að gera langa sögu stutta var maðurinn handtekinn þann 6. júní síðastliðinn, nokkrum dögum eftir að samskipti hans við Ethan hófust. Maðurinn sem um ræðir heitir Robert Davies en svo vill til að hann er lögreglumaður í Kaliforníu. Hann hefur nú verið sendur í launalaust leyfi meðan mál hans er til rannsóknar. Að sögn lögreglunnar í San Jose, þar sem Ethan er búsettur, skiptir raunverulegur aldur Ethans, eða „Esther“ ef út í það er farið, engu máli. Þarna hafi Robert talið sig vera að tala við barn undir lögaldri í kynferðislegum tilgangi og það sé lögbrot.

Ethan segir við bandaríska fjölmiðla að hann hafi ákveðið að prófa þetta í ljósi þess að góð vinkona hans hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi í æsku. Hann hafi aldrei gert þetta áður og hann muni ekki endurtaka leikinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.