Skandinavíska fegurðarsíðan Global Beauties Scandinavia á Facebook vekur athygli á þeim Egilsdætrum Hugrúnu Birtu og Ingibjörgu, og hve fagrar þær séu.
Forsvarsmenn síðunni vilja láta fylgjendur sína vita að Hugrún Birta, sem nú keppir í fegurðarsamkeppninni Miss Universe Iceland sé litla systir Ingibjargar, sem varð í öðru sæti í keppninni Ungfrú Ísland árið 2008 og fulltrúi Íslands í keppninni Ungfrú heimur árið 2009.
„Tíu árum síðar er komið að litlu systur,“ stendur í færslu á fyrrnefndri Facebook-síðu og því bætt við að Hugrún Birta sé í sérstöku uppáhaldi í Miss Universe Iceland keppninni.
„Þetta verður ekki mikið fallegra,“ er skrifað við mynd af þeim systrum. Þess má geta að Hugrún Birta tók einnig þátt í Ungfrú Ísland árið 2015.