Körfuboltakappinn Lamar Odom gaf nýverið út endurminningar sínar, Darkness to Light, þar sem hann gerir meðal annars upp baráttu sína við fíkniefni. Lamar var langt leiddur í kókaínneyslu á tímabili og hélt ítrekað framhjá þáverandi eiginkonu sinni, raunveruleikastjörnunni Khloé Kardashian.
Í bókinni rifjar hann meðal annars upp atvik sem átti sér stað á hótelherbergi á Hótel Roosevelt árið 2012. Lamar hafði lokað sig inni á herberginu með fjölda kvenna og nóg af kókaíni og marijúana.
„Það voru naktar stelpur úti um allt,“ skrifar Lamar í bókinni samkvæmt frétt Daily Mail. Loks fór það svo að Khloé, þáverandi eiginkona hans, og móðir hennar, Kris Jenner, réðust inn í herbergið með öryggisvörðum sínum. Fauk í Khloé þegar hún sá hvað átti sér stað inni á herberginu og gekk hún í skrokk á fatafellu.
„Hún opnaði hurðina og kýldi fyrstu stelpuna sem hún sá,“ skrifar Lamar í bókinni. „Hún lúbarði eina af stelpunum sem reyndu að neita því sem var í gangi. Hún dúndraði í hausinn á stelpunni.“
Á meðan á þessu gekk segir Lamar að Kris Jenner hafi öskrað úr sér lungun er öryggisverðir reyndu að losa Khloé af stúlkunni. Því næst sagði Khloé við Lamar að hann ætti að pakka niður föggum sínum og öryggisverðir afmáðu öll ummerki um fíkniefnaneyslu í herberginu. Þetta er ekki eina skiptið sem Khloé ræðst á hjákonur Lamar, en hún ógnaði konu að nafni Polina Polonsky á hóteli árið 2013. Khloé og Lamar skildu fyrir rúmlega fimm árum eftir fjögurra ára hjónaband.
Kardashian-fjölskyldan hefur ekki enn tjáð sig um bókina sem kom út í gær, 28. maí.