fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Hrollvekjandi tískubylgja í stefnumótamenningunni – Tindstagramming er eitthvað sem þú verður að kynna þér

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 28. maí 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir sem eru einhleypir hafa margir hverjir nýtt sér smáforritið Tinder til að komast á stefnumót og kynnast nýju fólki. Nú ríður hins vegar ný, hrollvekjandi tískubylgja yfir Tinder sem færist einnig yfir á Instagram. Þessi nýja bylgja heitir einfaldlega Tindstagramming, en orðið er sambland af Tinder og Instagramming.

Tindstagramming hljómar eins og skemmtilegt orð en hefur vissulega skuggahliðar. Er þetta í raun fallegt orð yfir eltihrelli á samfélagsmiðlum. Tindstagramming felst í því að þegar að manneskja fær tilkynningu um einhverja aðra manneskju á Tinder, hugsanlegan vonbiðil, en ákveður að hafna henni með því að færa fingurinn ákveðið til vinstri. Þá tekur manneskjan, sem er hafnað, upp á því að leita uppi hina manneskjuna á Instagram og hrellir hana í einkaskilaboðum – eða reynir það allavega.

„Þær hundsa þá staðreynd að þú hefur klárlega ekki áhuga á að tala við þær, í ljósi þess að þið pössuðuð ekki saman á stefnumótaforritinu,“ segir Samantha Burns, rithöfundur og stefnumótaþjálfi, í samtali við Women‘s Health.

„Þetta er líkt og brotið sé á þér“

Þó að þetta athæfi sé kallað Tindstagramming þá á þetta einnig við önnur stefnumótaforrit víðs vegar um heiminn, svo sem OkCupid, Bumble og Hinge.

„Þetta er líkt og brotið sé á þér,“ segir Samantha. „Þú skráðir þig í stefnumótaforrit til að fara á stefnumót með fólki sem þú passar saman við og þú skráðir þig líklegast ekki á Instagram til að vera hrelltur af einhverjum bjánum, allra síst af þeim sem þú ert búin/n að afskrifa á Tinder.“

Samantha segir þá sem Tindstagramma vera með sært stolt og noti þessa leið því þeir telji sér trú um að viðkomandi sem hafnaði þeim hafi gert það óvart.

„Þeir vona að þessi óhefðbundna leið til að ná athygli muni auka líkurnar,“ segir hún. „Stundum er ásetningur þeirra saklaus og þessir aðilar vilja bara kynnast þér því síðan þín á stefnumótaforritinu var svo frábær. Hins vegar er þetta oft bara hrollvekjandi tilraun til að senda kynferðisleg skilaboð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.