fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024

Mismunandi tegundir „erfiðra mæðra“ – Stýrðu neikvæðum upplifunum úr æsku yfir í jákvæðar

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 27. maí 2019 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvort sem þér líkar betur eða verr hafa samskipti þín við móður þína mótandi áhrif á persónuleika þinn og hafa þannig að öllum líkindum áhrif á þig alla ævi. Því miður eru þetta ekki alltaf jákvæð áhrif því mæður eru jafn misjafnar og þær eru margar. Sálfræðingurinn Terri Apter gerði þetta að viðfangsefni í nýrri bók sinni Difficult Mothers eða Erfiðar mæður, líkt og titilinn þýðist á íslensku.

Í bókinni eru „erfiðar mæður“ flokkaðar í nokkra hópa og farið yfir það hvernig er hægt að stýra neikvæðum áhrifum þeirra í uppeldinu yfir í jákvæð áhrif á fullorðinsárum.

Apter ólst sjálf upp hjá erfiðri móður og hún viðurkennir að ójafnvægi móður hennar og reiðiköst í æsku hafi enn áhrif á líf hennar í dag.

Reiða móðirin 

Sem sálfræðingur og móðir segist Apter mjög meðvituð um að allir foreldrar geti orðið reiðir. Sérstaklega þegar þeir eru þreyttir, stressaðir eða þegar þeir þurfa að vara börn sín við hættum og lesa þeim mikilvægar lífsreglur.

Þegar andrúmsloftið á heimilinu er hins vegar þannig að reiðin er ráðandi þá lifir barnið í stöðugum ótta og bíður sífellt eftir yfirvofandi tilfinningasprengjum móðurinnar.

Það kaldhæðnislega við þetta er, að sögn Apter, að svo virðist sem þau börn sem þurfa mest á því að halda að læra að sefa sig sjálf í þessum aðstæðum takist það síst. Þetta vandamál getur haldið áfram fram á fullorðinsár.

Einstaklingar sem upplifa slíkar aðstæður á barnsaldri eiga það til að verða friðarstillar og hafa þá tilhneigingu til að reyna að geðjast öllum. Þetta getur verið góður eiginleiki en þú verður að gæta þess að þetta hafi ekki of mikil áhrif á samskipti þín við annað fólk.

Stjórnsama móðirin 

Þessi tegund af móður vill vera með puttana í öllu því sem barnið tekur sér fyrir hendur og helst stjórna því alveg. Jafnvel stýra þörfum þess, löngunum og upplifunum.

Í heilbrigðu sambandi móður og barns er þessi stýring notuð til að móta viðmið og setja ákveðnar reglur. Þá er nauðsynlegt að hlusta á það sem barnið hefur að segja og leyfa því sjálfu að taka skynsamlegar ákvarðanir.

Barn sem fær aldrei að hafa sínar eigin skoðanir verður tortryggið gagnvart sínum eigin löngunum, þörfum og skoðunum. Að taka einfaldar ákvarðanir getur orðið þeim ofviða. Þau taka jafnvel upp á því að ljúga til að segja það sem stjórnsama móðirin vill heyra.

Það jákvæða við þessa erfiðu upplifun er að þeir sem alast upp við þessar aðstæður eru líklegir til að verða mjög tillitsamir, að mati Apter. Þeir hafa lært að vega og meta hugsanir sínar og skoðanir áður en þeir deila þeim með öðrum.

Það er þó ekki alltaf jákvætt enda getur hræðsla við að tjá eigin skoðanir og langanir haft mikil áhrif á líf einstaklinga. Til að vinna bug á þessum vanda skaltu reyna að deila upplifun þinni með öðrum. Farðu einnig í sjálfsskoðun og reyndu að skilgreina langanir þínar og hugsanir.

Sjálfselska móðirin 

Móður sem hefur tilhneigingu til að setja sig og sínar þarfir ávallt í fyrsta sætið vantar oft hluttekningu sem er svo mikilvæg til að halda heilbrigðu sambandi við barnið. Þegar barnið krefst athygli frá henni lítur hún á það sem samkeppni.

Slík móðir lítur oft á barnið sem spegilmynd sína og það verður að gjöra svo vel að sýna framúrskarandi árangur á öllum sviðum til að vera verðugt.

Það er þó sama hvað barnið leggur sig mikið fram það virðist aldrei neitt vera nógu gott fyrir móðurina.

Börn í þessum aðstæðum lifa í sífelldum ótta við að eyðileggja samband sitt við móðurina með því að móðga hana á einhvern hátt eða bregðast henni.

Apter segir að þrátt fyrir þetta geti ýmislegt jákvætt komið út úr því að alast upp hjá slíkri móður. Fólk er líklegt til að verða þolinmóðara og setja sér mjög háleit markmið í lífinu. Á móti kemur hins vegar að fólk sem elst upp við þessar aðstæður er líklegt til að gera lítið úr afrekum sínum og jafnvel missa af tækifærum af ótta við að standa ekki undir væntingum.

Til að ráða bug á þessum vanda skaltu gera lista yfir hluti sem þú nýtur þess að gera og getur verið stolt/ur af. Það hjálpar þér að átta þig á öllu því sem þú hefur afrekað í lífinu.

Afbrýðisama móðirin 

Flestir foreldrar vilja að börn þeirra séu hamingjusöm og að þeim gangi vel í lífinu, en fyrir afbrýðisama móður orsakar velgengni barnsins fjandskap hennar í þess garð.

Í staðinn fyrir að hvetja barnið áfram og byggja upp sjálfstraust þess er móðirin líkleg til að saka barnið um mont og gera lítið úr því.

Barnið skilur ekki af hverju móðirin getur ekki glaðst fyrir þess hönd og lærir smám saman að góðir hlutir sem gerast í lífi þess virðast einhvern veginn skaða þá manneskju sem því þykir vænst um og vill fá viðurkenningu frá.

Sálfræðileg áhrif þess að alast upp við slíkar aðstæður þurfa þó ekki endilega að vera neikvæð. Það er líklegt að einstaklingar með þessa reynslu í farteskinu reyni að leiða hjá sér öfund og neikvæðar athugasemdir. Þeir eru jafnframt líklegri til afreka drifnir áfram af óánægju móður sinnar.

Apter segir að ef áralangar tilraunir þínar til að reyna að geðjast öðrum hafa gert það að verkum að þú átt erfitt með að njóta afreka þinna geti verið gott að hafa þetta tvennt í huga: Móðir þín á við vandamál að stríða og ekkert sem þú gerir getur breytt því. Þá liggja vísindalegar sannanir fyrir því að það leiðir frekar til óhamingju að sækjast eftir viðurkenningu annarra heldur en að reyna að standa undir sínum eigin væntingum.

Tilfinningalega fjarlæga móðirin 

Ástæður fyrir tilfinningarlegri fjarlægð geta verið margar, til dæmis þunglyndi og fíkniefna- og áfengisvandi. En hver sem ástæðan er getur slík tilfinningaleg fjarlægð valdið barninu uppnámi og ringulreið.

Barn sem elst upp við þessar aðstæður fer oft að líta á það sem sitt hlutverk að hughreysta og vernda. Það hefur tilhneigingu til að finna til sektarkenndar ef það er hamingjusamt og tekur á sig ábyrgð á ýmsu til að bæta upp fyrir afskiptaleysi móðurinnar.

Á fullorðinsárum geta eðlilegar tilfinningar eins og gleði og sorg valdið þessum einstaklingum óþægindum. Líklegt er að þeir hafi mjög mótaðar hugmyndir um hlutverk sitt í nánum samböndum og líti á þarfir annarra sem mikilvægari en sínar eigin. Þeir geta líka átt erfitt með að treysta því að fólk sé til staðar fyrir þá.
Einstaklingar sem alast upp hjá tilfinningalega fjarlægri móður eiga oft og tíðum auðvelt með að eiga samskipti við einstaklinga af ólíku sauðahúsi.

Það er þó nauðsynlegt að þú áttir þig á því að þú berð ekki ábyrgð á óhamingju annarra, það heldur bara aftur af þér og kemur í veg fyrir að þú getir byggt upp sjálfstraust.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ofurtölvan hefur tekið stokkinn og lesið í hann eftir vendingar helgarinnar

Ofurtölvan hefur tekið stokkinn og lesið í hann eftir vendingar helgarinnar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Forráðamenn United verulega ósáttir með þessar fréttir frá helginni

Forráðamenn United verulega ósáttir með þessar fréttir frá helginni
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

David Beckham höfðaði mál gegn 150 fyrirtækjum og hafði betur

David Beckham höfðaði mál gegn 150 fyrirtækjum og hafði betur
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Nokkrir leikmenn United bíða eftir fréttum af Ten Hag – Skoða þá hvort þeir verði áfram að reyni að fara

Nokkrir leikmenn United bíða eftir fréttum af Ten Hag – Skoða þá hvort þeir verði áfram að reyni að fara