Það er oft talað um að typpastærð skipti máli þegar kemur að kynlífi. Typpastærð karlmanna er mjög breytileg og ber heimildum ekki nákvæmlega saman um hver meðalstærðin er. Það má ætla að meðallengd getnaðarlims í fullri reisn sé á bilinu 10 til 17 cm og meðalummál 8 til 12cm.
Meðallengd legganga er um 8 cm og lengist eftir stærð limsins. Breidd legganga er mismikil og getur það haft áhrif á fullnægingu bæði karlsins og konunnar.
Kona sem er mjög þröng getur örvað karlmann sem er með getnaðarlim af minni gerðinni ef svo má að orði komast. En hafa ber í huga að leggöng víkka við kynferðislega örvun um allt að 2.5 cm, þannig getur kona með meðalstærð legganga virst í þrengri kantinum hjá þeim mönnum sem eru ekki að standa sig í bólinu, eða ná ekki að örva konuna.
Karlmaður sem er með stórt typpi getur einnig fengið lítið út úr kynlífinu ef konan er með víð leggöng. Grindarbotnsæfingar eru góðar fyrir allar konur og þá sérstaklega eftir fæðingu barns eða barna. Hér skiptir tæknin meira máli en stærðin á báða bóga.