Raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Kim Kardashian var ein af þeim sem stal senunni á rauða dreglinum á nýafstaðinni Met galaveislu í glæsilegum kjól frá Mugler, en svo virtist sem Kim væri nýstigin upp úr sjónum og beint á dregilinn.
Eins og DV hefur sagt frá var vaxtarlag Kim gagnrýnt harðlega og hún líkamssmánuð á netinu. Nú hefur tímaritið Vogue sett myndband á netið sem sýnir hve mikið þrekvirki það var fyrir Kim að komast í lífstykkið sem var undir fyrrnefndum Mugler-kjól.
Í myndbandinu sjást þrír fullorðnir menn reima Kim í lífstykkið og er það svo þröngt að hún getur ekki sest niður.