Eins og lesendum Bleikt er vel kunnugt þá erum við mjög hrifin af Dr. Pimple Popper.
Sandra Lee er húðsjúkdómalæknir og heldur úti gríðarlega vinsælli YouTube-rás og Instagram-síðu. Við erum dugleg að deila myndböndum frá bólulækninum og er nýja myndbandið svakalegt.
Bólulæknirinn kreistir út hvítt jukk úr hálsi sjúklings og undir spilar lagið „Push it“ með Salt-N-Pepa. Það er því nauðsynlegt að horfa á það með hljóðið á.