Það getur verið ansi strembið að hitta beint í mark þegar kemur að því að gefa maka sínum gjöf. Skemmtileg umræða, sem hefur farið á flug í Facebook-hópnum Auðveldar mömmur, sannar það. En ein kona spyr:
„Hvað er versta gjöf sem þið hafið fengið frá makanum ykkar? Mitt er klárlega mýkingarefni í líters brúsa (nota btw ekki mýkingarefni).“
Það hafa yfir 124 ummæli safnast við þráðinn og hafa rúmlega 60 konur sagt frá slæmum gjöfum sem þær hafa fengið frá maka sínum. Við ætlum að deila með ykkur brot af því besta (eða réttara sagt því versta).