fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Átta ástæður til að stunda meiri sjálfsfróun

Ragnheiður Eiríksdóttir
Miðvikudaginn 24. apríl 2019 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

1. Með sjálfsfróun styrkir þú ástarsambandið við sjálfa þig. Þekking á eigin líkama getur verið mjög valdeflandi og betra/jákvæðara samband við líkamann eykur hamingju þína og gerir þig hæfari til að finna hamingju með öðrum. Partur af því að þekkja píkuna er að skoða hana. Finndu þér spegil sem þú getur látið standa sjálfan eða hallast upp að vegg – sundur með fætur og tékkaðu á henni. Sjáðu fellingarnar, litina, hárin og húðina. Hvaða tilfinningar kvikna? Mundu að þér getur þótt vænt um hana þó að hún sé ekki nákvæmlega eins fullkomin og þig langar. Píkur eru allskonar og fjölbreytnin er fögur.

2. Sjálfsfróun bætir kynlíf þitt með öðrum. Sjálfsfróun er langbesta leiðin til að skoða hvað virkar fyrir þig og hvaða leiðir þú getur notað til að fá fullnægingu með öðrum. Það sem þú gerir í kynlífinu með sjálfri þér á líka heima í bólinu með því fólki sem þú kýst að stunda kynlíf með. Ef þú veist hvað virkar og hvað þú vilt getur þú kennt einhverjum öðrum þær aðferðir. Í öllum bænum ekki hætta að fróa þér þó að þú farir í fast samband – passaðu alltaf upp á að eiga kynlífsstefnumót með sjálfri þér reglulega.

3. Sjálfsfróun hefur góð áhrif á sjálfsmynd þína, líkamlega og andlega. Þegar þú fróar þér ertu að sýna sjálfri þér ást – stunda kynlíf með einhverjum sem þú elskar skilyrðislaust. Líkamleg vellíðan eykur á hamingju og hamingjusöm ertu skemmtilegri og meira sjarmerandi manneskja. Sjálfstraust er öflugasti lostavaki í heimi.

4. Sjálfsfróun er holl fyrir píkuna þína. Sjálfsfróun eykur blóðflæði til ytri og innri kynfæra og hefur góð áhrif á grindarbotnsvöðvana. Við fullnægingu verður ósjálfráður samdráttur í vöðvunum sem styrkjast við það, rétt eins og þegar þú gerir grindarbotnsæfingar. Sterkur og heilbrigður grindarbotn minnkar líkur á þvagleka og bætir kynheilsu þína.

5. Sjálfsfróun bætir svefn. Þú kannast vonandi við sælu- og slökunartilfinninguna sem kemur í kjölfar fullnægingar. Hún flæðir um líkamann þegar sæluhormón eins og endorfín og oxytósín losna við fullnæginguna. Hormónin geta hjálpað þér að slaka á, sofna og meira að segja verður svefninn dýpri og betri.

6. Sjálfsfróun er góð fyrir hjartað. Konur deyja úr hjartasjúkdómum og mörgum reynist erfitt að koma reglulegri líkamsrækt inn í daglega prógrammið. Þá er aldeilis gott að vita að það má þjálfa hjartað og bæta blóðflæði líkamans með því að fróa sér. Það hefur meira að segja komið fram í nokkrum rannsóknum að konur sem fá það reglulega eru ólíklegri til að þróa með sér hjartasjúkdóma og sykursýki 2.

7. Sjálfsfróun er öruggt kynlíf! Svo framarlega sem þú fróar þér ekki marga klukkutíma á dag og hættir að tannbursta þig/mæta í vinnuna/tala við fjölskyldumeðlimi/greiða þér/nærast almennilega/setja statusta á facebook… eða álíka. Þú þarft engar áhyggjur að hafa af því að verða ólétt eða fá kynsjúkdóma.

8. Sjálfsfróun minnkar stress. Þegar þú færð fullnægingu ferðu í eins konar náttúrulega vímu – vegna hormónanna sem losna í líkamanum. Sumar rannsóknir hafa bent til þess að sjálfsfróun geti jafnvel minnkað líkur á þunglyndi. Ertu leið? Þá er kannski prýðileg hugmynd að þú elskir sjálfa þig aðeins oftar!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 8 klukkutímum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.