fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Hvað eru freknur og hverjir fá þær?

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 22. apríl 2019 19:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Freknur eru skaðlausir litlir húðblettir sem innihalda meira af litarefni en húðin í kring. Melanin er litarefni sem ákveðnar húðfrumur (melanocytes) framleiða til að verja húðina gegn skaðlegum útfjólubláum geislum sólarinnar. Melanin endurkastar og/eða gleypir geislana. Ljóst fólk er í grunninn með minna melanin í húðinni en fólk sem er dökkt á hörund.

Melanin framleiðsla eykst þegar þegar sól skín á húðina. Hjá sumu fólki, einkum með ljósa húð, er ójafnvægi milli húðfruma í framleiðslu á melanin. Svo þegar sól skín á húðina framleiða sumar húðfrumanna meira af melanin en aðrar og í stað þess að fá jafnan brúnan lit myndast dekkri blettir eða freknur í þeim frumum sem eru með meira melanin.

Útlit

Freknur eru yfirleitt ljósbrúnar,flatar, ekki upphleyptar,mjög litlar og stundum eru þær svo margar að þær renna saman í stærri skellur. Þær geta einnig tekið á sig rauðan,gulan,appelsínugulan eða svartan lit en þá eru þær allar eins hjá viðkomandi einstakling. Sumir hafa freknur allan ársins hring sem dökkna gjarnan á sumrin en algengt er að þær hverfi á veturna og komi svo fram í sólinni á sumrin.

Hverjir fá freknur?

Eins og áður sagði er það einkum fólk sem er mjög ljóst yfirlitum og/eða rauðhært sem er líkegast að fá freknur. Freknur ganga í erfðir og því meiri líkur á að börn foreldra með freknur fái freknur. Freknur koma yfirleitt fram á barnsaldri, jafnvel við eins árs aldur, og hverfa oft á fullorðinsárum.

Meðferð

Freknur eru alveg hættulausar og þróast ekki yfir í húðkrabbamein eins og fæðingablettir geta gert. Hins vegar eru freknur oft vísbending um að húð sé viðkvæmari fyrir sól og að brenna sem eykur hættu á húðkrabbemeini ef ekki er farið varlega í sólinni og notaðar góðar varnir.

Það er ekki til nein meðferð sem fjarlægir alveg freknur en sum ráð eru til að draga úr sýnileika þeirra.

• Forðast að vera með húðina bera í sólinni.
• Nota sterka sólarvörn
• Ýmis krem eru til sem lýsa upp freknur en fjarlægja ekki. Sterkari krem þarf húðlæknir að skrifa upp á.
• Laser geislameðferð getur lýst upp freknur
• Þar sem freknur eru alveg meinlausar og þykja oftast fallegt persónueinkenni er yfirleitt ástæðulaust að eiga við þær.

Höfundur greinar:
Guðrún Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 8 klukkutímum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.