Í byrjun mánaðar var tilkynnt að söngkonan Britney Spears væri í mánaðar innlögn á geðdeild. Þetta hefði hún ákveðið af sjálfsdáðum þar sem veikindi föður hennar hafa lagst mjög þungt á hana.
Aðdáendur hennar sýndu stjörnunni stuðning, allavega til að byrja með. Þó hafa efasemdaraddir orðið háværari eftir því sem líður á mánuðinn. Nú hefur myllumerkið #FreeBritney orðið að herferð eftir að nafnlaus aðili, sem segist vera aðstoðarmaður lögmanns, steig fram í hlaðvarpi og sagði að Britney hefði verið lögð nauðug inn á geðdeild og ekki í byrjun apríl heldur um miðjan janúar. Hún á því að hafa dvalið þar í fjóra mánuði, þvert á hennar vilja.
Nafnlausi aðilinn segist hafa unnið fyrir fjölskyldu Britney og orðið vitni af því að faðir Britney, sem jafnframt er lögráðamaður hennar, hafi hótað að banna henni að koma fram á reglulegum sýningum í Las Vegas, nema hún taki lyfin sín. Síðan þegar hún fór ekki að þessum fyrirmælum gerði hann alvöru úr hótunum sínum. Hann hafi látið Britney segja að hún væri að hætta í Vegas vegna veikinda hans.
Móðir Lynne hefur gefið þessum orðrómi byr undir báða vængi með því að líka við athugasemdir á Instagram. Athugasemdir á borð við „Ég vona að þú sért að styðja við Britney í að fá lögræðið aftur,“ eða „Ég vona að þinn veiki fyrrverandi sé ekki að halda dóttur ykkar nauðugri einhvers staðar“.
Lynne skrifaði svo undarlega uppfærslu á Instagram á dögunum „Þegar stríðsmenn guðs falla á kné, þá er baráttan ekki búin. Hún er bara rétt að byrja“. Þessa færslu hafa margir túlkað sem staðfestingu á því að Britney sé í vanda og móðir hennar að reyna að hjálpa henni.
Faðir Britney varð lögráðamaður hennar eftir taugaáfall árið 2008. Þetta þýðir að hann tekur allar lögfræðilegar, fjárhagslegar, viðskiptalega og læknisfræðilegar ákvarðanir fyrir hana.
Aðrir hafa blásið á orðróminn með því til dæmis að benda á það að Britney sást í síðustu viku á hárgreiðslustofu í leyfi frá geðdeildinni. Að sögn sjónarvotta var hún „í fínu lagi og sátt“.