Karlmenn með skegg bera með sér fleiri sýkla en hundar, þar á meðal banvænar bakteríur, samkvæmt nýrri rannsókn sem sagt er frá í Mail on Sunday.
Í rannsókninni voru átján skegg karlmanna rannsökuð og þrjátíu hundar af ýmsum tegundum.
„Vísindamennirnir komust að því að það var talsvert meira af bakteríum í sýnunum úr skeggjunum en í feldi hundanna,“ segir prófessor Andreas Gutzeit, einn af þeim sem standa á bak við rannsóknina.
Karlmennirnir sem tóku þátt í rannsókninni voru á aldrinum 18 til 76 ára og báru þeir allir hátt hlutfall af sýklum í skeggjum sínum. Hins vegar voru aðeins 23 af 30 hundum með mikið af bakteríum í feldnum. Sjö af karlmönnunum átján báru banvæna sýkla í skegginu.
„Ef eitthvað er að marka þessar niðurstöður þá eru hundar hreinir, allavega ef þeir eru bornir saman við skeggjaða menn,“ segir Andreas.