fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Kris Jenner ljóstrar upp hvað dæturnar græða á samfélagsmiðlum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Laugardaginn 13. apríl 2019 20:01

Kris með dætrum sínum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kris Jenner, móðir Khloé, Kim og Kourtney Kardashian og Kylie og Kendall Jenner, var í viðtali við Sunday Morning á CBS fyrir stuttu og talaði meðal annars um hve mikið dætur sínar þéna á samfélagsmiðlum. Allar eru þær áhrifavaldar með margar milljónir fylgjenda, en Kris segir þær fá tilboð frá fyrirtækjum nánast daglega.

„Dætur mínar fá stanslaust tilboð um að birta eitthvað fyrir fyrirtæki eða vörumerki á samfélagsmiðlum,“ segir hún. „Þær eru með visst gjald fyrir færslu, gjald fyrir „story“, gjald fyrir Facebook – þær eru með gjaldskrá,“ bætir hún við.

Kris Jenner.

Kris segir jafnframt að þær þéni vel á því að vera áhrifavaldar.

„Þær græða klárlega sex stafa tölu,“ segir hún um hvaða gjald systurnar taka fyrir auglýsingar, en bætir við að gjaldið hækki ef um er að ræða eitthvað sem þær drekka, melta eða setja á líkama sinn.

Khloé, Kim og Kourtney hafa einmitt allar verið gagnrýndar fyrir að auglýsa detox-te og megrunardrykki síðustu misseri og styðja þannig við óheilbrigða líkamsímynd. Það er víst allt falt fyrir peninga.

Mæðgurnar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Nestlé dælir sykri í vörur ætlaðar börnum í fátækum ríkjum

Nestlé dælir sykri í vörur ætlaðar börnum í fátækum ríkjum
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.