Chris Monroe hefur orðið frægur á YouTube fyrir „kyssuhrekki“ sína, en netverjar eru gjörsamlega að fríka út yfir nýjasta hrekknum.
Í nýjasta myndbandinu sínu kyssir Chris stelpu sem hann segir vera systur sína, og skiljanlega er allt internetið skelfingu lostið.
Chris heldur úti YouTube rásinni PrankInvasion. Í myndbandinu kyssir hann Kaitlyn O‘Connor, sem hann sagði áhorfendum sínum að væri ekki alsystir hans, heldur hálfsystir hans, ef það lætur einhverjum líða betur.
Kossinn á milli systkinanna er enginn krúttkoss, heldur frekar ákafur tungusleikur.
Chris lofaði áskrifendum sínum, sem eru 3,7 milljón talsins, „einhverju stóru“ eftir að hafa horfið frá miðlinum í sex mánuði. Hann sagðist ætla að fá systur sína til að taka þátt í einum af „kyssuleikjunum“ sínum.
„Ég hef reynt, alveg fimm sinnum að spyrja hana. En ég er svo stressaður, því hún er systir mín og ég vil ekki að hún haldi að ég sé klikkaður. Mér finnst eins og ég sé algjör perri, ég hef bókstaflega verið að fylgjast með systur minni, uppi, í svona klukkustund,“ segir Chris í myndbandinu.
Chris fer síðan upp í herbergi Kaitlyn og fær hana einhvern veginn til að samþykkja að fara í skæri, blað, steinn. Reglurnar eru þær að ef hann vinnur fær hann að kyssa hana. Ekki gleyma að hún er systir hans. Höfum það á hreinu.
„Nei hættu, ég vill ekki kyssa þig. Ég get ekki kysst bróðir minn,“ segir Kaitlyn.
Svo kyssast þau, og ekkert lítið. Nánari lýsinga er ekki þörf, horfðu bara á myndbandið.
Eftir kossinn segir Kaitlyn: „Ég vil aldrei gera þetta aftur.“
„Það sem ég geri fyrir YouTube,“ segir Chris. Hann auglýsti síðan Instagram-aðgang systur sinnar.
Myndbandið hefur fengið yfir 2,6 milljón áhorf og viðbrögðin eru vægast sagt neikvæð. Einn netverji segir að þetta hafi ekki verið neinn hrekkur því Chris hafi notið kossins. Annar segist halda að Chris viti ekki hvað hrekkur er. Myndbandið hefur fengið tæp hundrað þúsund „dislike.“