Meghan Markle og Harry prins giftu sig í fyrra og eiga von á sínu fyrsta barni á næstu dögum. Það er því í nægu að snúast hjá þeim en í vikunni birtu þau afskaplega fallega mynd af sér þegar þau voru nýbyrjuð saman.
Myndin hefur aldrei sést áður en á henni sjást turtildúfurnar hjá fíl sem er búið að deyfa, en hjónakornin eru að setja á hann hálsól svo vísindamenn geti rakið ferðir hans.
Harry hefur unnið mikið og gott starf við að vernda dýralíf í Afríku, en fyrrnefnd mynd var tekin af þeim Meghan árið 2017, nokkrum mánuðum eftir að þau byrjuðu að hittast.
Hjónin birtu fleiri myndir í sömu seríu á Instagram og þær má sjá hér fyrir neðan: