Tónlistarmaðurinn Justin Bieber birti ansi djarfar myndir af eiginkonu sinni, fyrirsætunni og sjónvarpskonunni Hailey Baldwin, í sögu sinni á Instagram í gær.
Justin tók myndir af Hailey uppi í rúmi, aðeins klædd í efnislitlan hlýrabol og nærbuxur. Þá er Hailey með hálsmen sem er úr fatalínu tónlistarmannsins, Drew House.
Við eina myndina skrifar Justin einfaldlega: „Hæ, elskhugi.“
Justin og Hailey gengu í það heilaga við leynilega athöfn í október í fyrra.